Ferill 742. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1360 — 742. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögreglulögum og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (menntun lögreglu).
(Eftir 2. umræðu, 26. maí.)
I. KAFLI
Breyting á lögreglulögum, nr. 90/1996, með síðari breytingum.
1. gr.
2. gr.
a. Orðin „skólastjóri Lögregluskóla ríkisins“ í 1. mgr. falla brott.
b. Í stað orðanna „Lögregluskóla ríkisins“ í 8. mgr. kemur: lögreglufræðum.
3. gr.
4. gr.
a. Á eftir orðinu „lögreglustjórar“ í 2. mgr. kemur: og.
b. Orðin „og skólastjóri Lögregluskóla ríkisins“ í 2. mgr. falla brott.
c. Á eftir orðunum „Lögregluskóla ríkisins“ í a-lið 3. mgr. kemur: eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, sbr. ákvæði laga um háskóla, nr. 63/2006 , þ.m.t. starfsnám á vegum lögreglunnar.
d. Við 2. málsl. 4. mgr. bætist: eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnám á vegum lögreglunnar.
e. Í stað orðanna „prófi frá Lögregluskóla ríkisins, enda fullnægi hann skilyrðum 2. mgr. 38. gr. laganna og enginn með próf frá Lögregluskóla ríkisins er tiltækur í stöðuna“ í 5. mgr. kemur: prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnám á vegum lögreglunnar, enda fullnægi hann skilyrðum í a-, b-, c-, d- og e-liðum 1. mgr. 38. gr. og enginn með próf frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómapróf í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnám á vegum lögreglunnar, er tiltækur í stöðuna.
5. gr.
a. (36. gr.)
Áætlun um endurnýjun í lögreglu ríkisins.
b. (37. gr.)
Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu.
2. Hlutverk mennta- og starfsþróunarseturs er m.a.:
a. að annast starfsnám nema í lögreglufræðum við háskóla, sbr. 38. gr., í samstarfi við háskóla,
b. að hafa umsjón með símenntun lögreglumanna innan lögreglu,
c. að annast skipulagningu og framboð sérhæfðra námskeiða, eftir atvikum í samstarfi við háskóla eða á grundvelli alþjóðasamstarfs,
d. að vera stjórnvöldum til ráðgjafar um menntun lögreglumanna,
e. að annast alþjóðasamskipti á vettvangi lögreglumenntunar,
f. að annast önnur verkefni er lúta að menntun og fræðslu lögreglu.
c. (38. gr.)
Inntökuskilyrði nema í starfsnám hjá lögreglu.
a. vera íslenskir ríkisborgarar, 20 ára eða eldri,
b. hafa ekki gerst brotlegir við refsilög, þetta gildir þó ekki ef brot er smávægilegt eða langt er um liðið frá því að það var framið, né hafa sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem lögreglumenn verða almennt að njóta,
c. vera andlega og líkamlega heilbrigðir og standast læknisskoðun trúnaðarlæknis samkvæmt fyrirliggjandi kröfum sem mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu setur reglur um í samstarfi við háskóla,
d. hafa lokið stúdentsprófi eða annarri sambærilegri menntun,
e. samkvæmt nánari kröfum sem ráðherra setur með reglugerð, á grundvelli tillagna frá mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu, m.a. um menntun, starfsþjálfun, tungumálakunnáttu og líkamlega færni.
2. Til að sannreyna hvort viðkomandi uppfylli skilyrði b-liðar 1. mgr. er mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
d. (39. gr.)
Samningar um kennslu- og rannsóknastarfsemi á sviði lögreglufræða.
2. Í samningum skv. 1. mgr. skulu koma fram lágmarkskröfur um inntak og gæði náms í lögreglufræðum, helstu áherslur í kennslunni, námskrár, námsframboð, kennslufyrirkomulag, mat og eftirlit með gæðum og annað sem talið er æskilegt af hálfu samningsaðila. Þá skal kveðið á um sérstök inntökuskilyrði, nemendafjölda, gjaldtöku af nemendum og greiðslur fyrir aðra þjónustu sem veitt er á grundvelli samningsins.
3. Samráð skal haft við mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu þegar fjallað er um framkvæmd kennslu- og rannsóknastarfsemi á sviði lögreglufræða á árlegum samráðsfundi háskóla með ráðherra sem fer með málefni háskóla.
e. (39. gr. a.)
Reglugerð um starfsemi mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu.
II. KAFLI
Breyting á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins,
nr. 70/1996, með síðari breytingum.
6. gr.
7. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
II.